Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 15. október 2026
Við fylgjumst ekki með ferðum þínum á vefnum og notum engar vafrakökur. Einu persónuupplýsingarnar sem við biðjum um eru þær sem þú sendir okkur í fyrirspurn. Hér útskýrum við hvað við gerum við þær.
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Stormur Datacenters ehf., kt. 590224-0730. Heimilisfang: Neshagi 16, 107 Reykjavík, Ísland. Sendu spurningar og beiðnir sem varða persónuvernd á info@sdc.is.
Vefurinn
Vefurinn vistar engar vafrakökur og notar engin greiningar- eða rakningartól.
Ef þú velur tungumál með tungumálahnappnum (IS/EN) vistast valið í staðbundinni geymslu vafrans (local storage) undir lyklinum „preferred_lang“ svo að vefurinn muni það næst. Valið berst okkur aldrei og þú getur eytt því í stillingum vafrans. Hafir þú ekki valið tungumál athugar vefurinn tungumálastillingu og tímabelti vafrans til að ákveða hvort sýna eigi íslensku útgáfuna. Athugunin fer fram í vafranum þínum og ekkert er vistað. Bendi hún til íslensku sækir vafrinn einfaldlega íslensku síðuna.
Cloudflare, sem hýsir vefinn, vinnur með IP-tölu þína og tæknilegar upplýsingar um beiðnir til að birta vefinn og verja hann gegn árásum og misnotkun. Vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum okkar af öruggum rekstri vefsins, sbr. f-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar (ESB) 2016/679 og lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Fyrirspurnir
Ef þú sendir okkur fyrirspurn með samskiptaforminu fáum við nafn þitt, netfang og skilaboð, auk símanúmers og fyrirtækis ef þú gefur þau upp. Við sjáum einnig hvort þú notaðir íslensku eða ensku útgáfu vefsins. Fyrirspurnir sem berast okkur í tölvupósti fá sömu meðferð.
Við notum upplýsingarnar til að svara fyrirspurninni og fylgja henni eftir. Varði hún þjónustu okkar notum við þær einnig til að útbúa tilboð eða samning. Vinnslan byggist á lögmætum hagsmunum okkar af því að svara fyrirspurnum og útbúa tilboð, sbr. f-lið 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar. Standi til að gera samning við þig persónulega er vinnslan auk þess nauðsynleg til að gera ráðstafanir að beiðni þinni áður en samningur er gerður, sbr. b-lið sömu málsgreinar.
Þér er ekki skylt að veita upplýsingarnar, en án nafns, netfangs og skilaboða getum við ekki svarað þér.
Vinnsluaðilar og flutningur út fyrir EES
Við notum þrjá vinnsluaðila sem vinna með upplýsingarnar eingöngu samkvæmt fyrirmælum okkar. Cloudflare hýsir vefinn og tekur við fyrirspurnum úr samskiptaforminu, Resend sendir okkur þær í tölvupósti og Microsoft hýsir tölvupóstinn okkar (Microsoft 365).
Cloudflare, Resend og Microsoft eru bandarísk fyrirtæki og því kunna upplýsingarnar að verða fluttar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið. Slíkur flutningur byggist annaðhvort á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um að gagnaverndarrammi ESB og Bandaríkjanna (EU-U.S. Data Privacy Framework) tryggi fullnægjandi vernd eða á stöðluðum samningsákvæðum framkvæmdastjórnarinnar. Þú getur óskað eftir nánari upplýsingum um þessar verndarráðstafanir, eða afriti af þeim, með tölvupósti á info@sdc.is.
Við hvorki seljum né leigjum upplýsingarnar og látum þær engum í té í markaðsskyni. Þær fara aðeins til vinnsluaðilanna sem hér eru nefndir eða til annarra ef lög skylda okkur til þess.
Varðveisla
Við geymum persónuupplýsingar ekki lengur en þörf krefur í þeim tilgangi sem lýst er hér að framan. Fyrirspurnum sem ekki leiða til viðskipta eyðum við þegar samskiptunum er lokið og ekki er lengur ástæða til að fylgja þeim eftir. Leiði fyrirspurn til samnings geymum við samskiptin meðan viðskiptasambandið varir og eftir það aðeins eins lengi og lög krefjast eða þörf er á til að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við höfum um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim, láta takmarka vinnslu þeirra og fá þær afhentar á tölvulesanlegu formi. Þú getur einnig hvenær sem er andmælt vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum okkar. Sendu beiðni á info@sdc.is og við svörum innan lögbundinna fresta, að jafnaði innan mánaðar.
Ef þú telur að við förum ekki rétt með upplýsingarnar getur þú kvartað til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
Gildissvið og breytingar
Stefnan gildir um vefinn sdc.is og fyrirspurnir sem þú sendir okkur með samskiptaforminu eða í tölvupósti. Hún nær ekki til persónuupplýsinga sem unnið er með í tengslum við gagnavershýsingu okkar; um meðferð þeirra er kveðið á í þjónustusamningi við hvern viðskiptavin. Ef við breytum stefnunni uppfærum við dagsetninguna efst á síðunni.